Handbolti - Háspenna

23.okt.2010  18:21
Grótta, sem fyrir mótið var spáð efsta sæti 1.deildar, mætti til Vestmannaeyja í dag. ÍBV var spáð öðru sæti þannig að fyrirfram mátti búast við hörkuleik. Það varð einmitt raunin leikurinn var spennandi til lokaflauts.
Grótta byrjaði betur og komst í 1-5 en þá kom Theodór Sigurbjörnsson inná og hann átti eftir að koma mikið við sögu. Fyrr um daginn fékk hann þær fréttir að hann hefði verið valinn í U-19 ára landsliðið. Hvort þær fréttir hafi haft svona góð áhrif á Tedda eða að hann sé bara búinn að æfa vel, þá spilaði hann mjög vel í dag. Hinn landsliðsmaður ÍBV Vignir Stefánsson var líka góður, en erfitt er að taka einhverja út því allir leikmenn íBV voru að leika vel. Vörn og markvarsla hefur verið góð í flestum leikjunum í vetur og það var engin breyting þar á í dag.
 
Grótta leiddi með tveimur mörkum í hálfleik 10-12. En munurinn var yfirleitt ekki nema eitt mark. Grótta komst tveimur mörkum yfir þegar stutt var eftir, en ÍBV gafst aldrei upp. Grótta missti þá tvo leikmenn útaf, það hafði góð áhrif á ÍBV og til að bæta um betur þá fór einn þeirra sem var útaf of fljótt inná aftur og fékk í refsingu aðrar tvær mínútur. ÍBV jafnði leikinn og náði svo aftur boltanum og hefðu getað sigrað, en nýttu ekki þá sókn. Jafntefli varð niðurstaðan 24-24.
Mikill fjöldi fólks mætti og var góður stuðningur við ÍBV.
 
Mörk ÍBV:
Vignir Stefánsson 9
Leifur Jóhannesson 5
Theódór Sigurbjörnsson 4
Arnar Pétursson 3
Brynjar Karl Óskarsson 1
Birkir Már Guðbjörnsson 1
Sindri Ólafsson 1