Handbolti - ÍBV fékk heimaleik við ÍR

08.okt.2010  19:47
Í dag var dregið í 32ja liða úrslitum bikarkeppni HSÍ, Eimskipsbikarnum.  ÍBV teflir fram tveimur liðum í bikarkeppninni, ÍBV og ÍBV2 en gæði lið fengu heimaleik í fyrstu umferðinni.  ÍBV tekur á móti ÍR en bæði lið spila í 1. deild og má búast við hörkurimmu þeirra á milli.  ÍBV2 tekur hins vegar á móti Spyrni en Spyrnir kemur frá Fjarðarbyggð.
Áætlað er að leikirnir fari fram sunnudaginn 17. og mánudaginn 18. október.