Handbolti - Vignir í landsliðið

04.okt.2010  21:22
Vignir Stefánsson hefur verið valinn í æfingahóp U21 landsliðsins. Vignir er vel að þessu kominn, enda æft vel í sumar. Hann á örugglega eftir að standa sig vel og komast í liðið. Landsliðið tekur nú þátt í riðlakeppni fyrir HM sem verður í Makedóníu í janúar á næsta ári.