Fótbolti - ÍBV - Breiðablik kl. 16.00 á Hásteinsvelli

30.maí.2010  10:32
Loksins, loksins.  Fyrsti heimaleikur ÍBV í sumar fer fram í dag þegar sprækir Blikar koma í heimsókn. Bæði lið hafa fengið sjö stig úr fyrstu fjórum umferðunum í deildinni og sitja í 3-6 sæti deildarinnar. Við hvetjum Eyjamenn til að fjölmenna á völlinn og styðja liðið.  Við hvetjum iðkendur ÍBV að mæta í gömlum búningum ÍBV og gera stúkuna hvíta!!