Fótbolti - Stuðningsmannakvöld í Týsheimilinu kl. 20:00 á föstudaginn

26.maí.2010  14:13
Allir stuðningsmenn ÍBV eru velkomnir í stuðningsmannahitting í Týsheimilinu á föstudaginn kl. 20:00.  

Heimir fer yfir stöðu mála, stuðningsmannaklúbburinn mætir á svæðið, sala árskorta og ÍBV stemmning sem engin má missa af. Hvetjum alla til að  mæta, sérstaklega er skorað á eldri leikmenn að mæta. 

Heitt verður á könnunni.