Fótbolti - Strákarnir þjöppuðu sér saman og sýndu gríðarlegan karakter!

21.maí.2010  14:55
Meistaraflokkurinn hefur nú dvalið í tæpa viku í borginni og hefur liðið nýtt tíman vel til að æfa og þjappa hópnum saman fyrir átök sumarsins. Leikurinn gegn Val gegg nokkuð vel og endaði með jafntefli eftir að hafa verið einum færri megnið af leiknum.
 
Það var því kærkomið að slaka á í bláa Lóninu fyrir FH leikinn, sú slökun reyndist drengjunum vel, því að þeir sýndu styrk sinn þegar þeir lögðu sjálfa íslandsmeistarana á þeirra eigin heimavelli 3-2. Næsti leikur liðsins er á Vodafonevellinum gegn Haukum kl. 17:00 á mánudag.