Fótbolti - Skiptum á heima og útileik gegn Val. Öskufallið örlagavaldur

15.maí.2010  10:59
 Vegna mikillar ösku, hefur verið tekin ákvörðun um að skipta við Valsarana um heimaleik. Við leikum því heimaleik okkar gegn þeim 25. júlí. Leikurinn sem átti að vera í dag, verður hins vegar á mánudaginn kl. 19:15 í Reykjavík. 
 
Leikmenn ÍBV munu því ferðast með Herjólfi til Reykjavíkur á morgun til að leikurinn geti farið fram á mánudag. 
 
Í augnablikinu er verið að skoða þann möguleika að æfa í Reykjavík í næstu viku, þar sem að ekki er útlit fyrir að hægt verði að æfa fótbolta utandyra í vikunni. ÍBV á síðan aftur útileik gegn FH á fimmtudag og gegn Haukum annan mánudag. 
Nú þurfa Eyjamenn að fastalandinu að sameinast og koma og styðja liðið við þessar erfiðu aðstæður. Það er því ljóst að fyrstu fjórir leikirnir fara fram í höfuðborginni.