Fótbolti - ÍBV semur við Hjálmar Viðarsson

15.maí.2010  20:53
 ÍBV hefur gert tveggja ára samning við Eyjapeyjan Hjálmar Viðarsson. Hjálmar er geysilega efnilegur miðjumaður sem hefur verið að spila með meistaraflokki á undirbúningstímabilinu.
 
Hjálmar kom inn á í sínum fyrsta leik í efstu deild á móti Fram á laugardalsvellinum og verður væntanlega í leikmannahópi ÍBV gegn Val á Vodafonevellinum á morgun. Hjálmar er 19 ára og er því enn í 2. flokki ÍBV.