Fótbolti - Vel heppnað Herrakvöld ÍBV í gærkvöldi

01.maí.2010  19:41
Vel heppnað herrakvöld ÍBV fór fram í Akóges í gærkvöldi. Kvöldið var frábært í alla staði, maturinn var frábær og skemmtiatriðin ekki síðri. Leikmenn ÍBV þjónuðu til borðs og hjálpuðu til í elhúsinu og stóðu sig með stakri prýði að sögn veisluhaldara. Nýju leikmennirnir Ásgeir Aron og Finnur Ólafs sýndu nýja búnginn sem má sjá í myndaalbúmi. Myndirnar af kvöldinu má sjá hér.