Handbolti - Fyrsta orrustan á föstudaginn

20.apr.2010  18:00
Nú er komið að baráttunni um sæti í efstu deild hjá handboltastrákunum. Í fjögurra-liða úrslitum mætir ÍBV Aftureldingu og Grótta tekur á móti Víkingi. 
 
ÍBV leikur útileik á föstudaginn kl.20:00 og fer leikurinn fram að Varmá. Við skorum á alla sem geta komist á leikinn að fjölmenna og styðja strákana. Það er ekki getumunur á þessum liðum og skiptir stuðningur ykkar öllu máli.
 
Strákarnir leika heimaleikinn á sunnudaginn kl.13:30.