Fótbolti - ÍBV í æfingaferð á Spáni

03.apr.2010  19:40
Meistaraflokkur karla og kvenna er núna á Spáni í æfingaferð. Æfingaferðin er liður í undirbúningi liðana fyrir átök sumarsins. Strákarnir eru á stað sem heitir Oliva Nova og stelpurnar eru á Benidorm, um 40 km eru á milli staðanna. Liðin koma svo heim fimmtudaginn 8.apríl. Skorað er á strákana og stelpurnar að skrifa pistil á spjallsíðu félagsins.