Handbolti - Suðurlands-jarðhræringar

26.mar.2010  09:46
Það gengur mikið á í náttúru suðurlands. Hér alast menn upp við eldgos og jarðskjálfta. Það má því búast við átökum þegar ÍBV mætir Selfossi í handbolta á morgun laugardag kl.13:30. Leikir þessara liða eru alltaf spennandi. Áhorfendur geta skipt mikilu máli í þessum leik.
 
Allir sem mæta í ÍBV-búning fá happadrættismiða og dregið verður í hálfleik. Vinningar verða stór páskaegg.