Handbolti - ÍBV öruggt í Úrslitakeppnina

19.mar.2010  17:17
Selfoss vann ÍR í gær og er ÍBV þar með öruggt með sæti í Úrslitakeppni um sæti í efstu deild. ÍBV á enn möguleika á efsta sætinu, en það lið fer beint upp.
 
ÍBV lék gegn ÍR um síðustu helgi og var gaman að sjá hve margir Eyjamenn mættu og studdu strákana. Töluðu leikmennirnir um að þetta hefði verið eins og að keppa á heimavelli.
 
ÍBV leikur á móti Þrótti í Austurberginu á laugardag kl.13:30. Skorum við á all Vestmannaeyinga að mæta.