Handbolti - Fimm stelpur frá ÍBV í U-16

18.mar.2010  18:52
Valdar hafa verið fimm stelpur frá Vestmannaeyjum í úrtakshóp U-16 ár landsliðs kvenna í handbolta. Þetta eru þær Aðalheiður Pétursdóttir, Berglind Sigurðardóttir, Drífa Þorvaldsdóttir, Sigríður Garðarsdóttir og Svava Tara Ólafsdóttir. Glæsilegur hópur sem getur átt eftir að ná langt í handbolta.