Eins og í meistaraflokksleiknum daginn áður, voru eyjapeyjar klárir í leikinn. Góð barátta í vörn, Haukur í stuði í markinu og skemmtilega útfærður sóknarleikur skóp sannfærandi ÍBV-sigur.
ÍBV var yfir nánast allan leikinn og voru hálfleikstölur 16-13 og lokastaða 33-28.
Þarna eru strákar sem hafa verið að spila með mfl. en líka strákar sem hafa bætt sig mikið í vetur. Þarf ekki að kvíða næsta vetri ef þeir halda allir áfram á sömu braut.
Aðeins Kolbeinn gengur upp úr flokknum og svo fáum við Binna Kalla aftur til leiks en hann sleit krossband fyrr í vetur. Hann hefur verið duglegur í þreksalnum í vetur og mætir aftur helmassaður.