Handbolti - Strákarnir fóru með Herjólfi

12.mar.2010  18:35
ÍBV leikur gegn ÍR í Austurbergi á morgun laugardag kl.13:30. Strákarnir fóru með Herjólfi og er því öruggt að leikurinn fer fram. Þetta er mjög þýðingarmikill leikur fyrir bæði lið. Með sigri fer ÍBV langt með að tryggja sér rétt til að spila  í Úrslitakeppninni.
 
Allir fóru með, en þó er ekki víst hvort Siggi spili með. Ef hann gerir það þá leikur hann sinn 300. deildarleik fyrir ÍBV.
 
Við skorum á alla sem tök hafa á að mæta og styðja strákana!
 
Leiknum verður gerð skil hér á síðunni og staðan uppfærð á 10 mín. fresti.