Fótbolti - ÍBV spilar 2 leiki um helgina í Lengjubikarnum.

12.mar.2010  17:40
Karlalið ÍBV leikur geng Þrótti Reykjavík í kvöld 12. mars í Egilshöll klukkan 21.00. ÍBV á svo annan leik um helgina við HK í Kórnum í Kópavogi og byrjar sá leikur 11:45.
ÍBV tapaði síðstu helgi gegn Blikum 2-0, en sá leikur var beint á www.sporttv.is, ÍBV gerði sér svo ferð uppá Skaga þar sem þeir lögðu 1. deildarliðið Gróttu 3-1 þar sem Tonny Mawjje skoraði 2 fyrstu mörkin.
Vonandi mun Tonny halda áfram á skot skónum í kvöld og hvetjum við Eyjamenn á höfuðborgarsvæðinu að kíkja á leikina hjá strákunum.
ÍBV situr í 4 sæti með 6 stig eftir 2 sigra og 2 töp en Breiðablik eru efstir með 12 stig.