Fótbolti - ÍBV - Breiðablik í beinni á Sport TV í kvöld

05.mar.2010  09:25
ÍBV leikur í kvöld gegn breiðabliki í Lengjubikarnum í knattspyrnu. Leikurinn fer fram í Kórnum og hefst hann klukkan 21.00. Netsjónvarpstöðin Sport-TV mun sýna leikinn beint. Við hvetjum að sjálfsögðu alla Eyjamenn til að mæta á svæðið og styðja sína menn.
ÍBV hefur nú þegar leikið tvo leiki í Lengju bikarnum. Fyrst var það 6-0 sigur gegn ÍR-ingum en síðan tap gegn KR 4-1. Það verður því fróðlegt að fylgjast með strákunum í kvöld. Hægt er að fara á vef sport-TV með því að smella hér.