Handbolti - Níu marka sigur hjá stelpunum

28.feb.2010  13:26
Kvennalið ÍBV tók á móti ÍR í 2. deildinni í handbolta í kvöld.  ÍR-ingar byrjuðu betur í leiknum, komust m.a. í 2:5 og var stuðningsmönnum ÍBV hætt að lítast á blikuna í upphafi leiks.  En stelpurnar náðu fljótlega áttum, sigldu fram úr og voru þremur mörkum yfir í hálfleik, 17:14.  Í síðari hálfleik náðu stelpurnar svo betri tökum á varnarleiknum og fengu fyrir vikið fjölmörg hraðaupphlaup sem skiluðu auðveldum mörkum.  Lokatölur urðu 34:25.
Þrátt fyrir sannfærandi sigur hafa Eyjastúlkur leikið betur í vetur.  Varnarleikurinn í fyrri hálfleik var ekki mjög burðugur og slakt lið ÍR átti ekki í miklum vandræðum með að finna réttu leiðin í gegnum vörn ÍBV.  Hins vegar lagaðist vörnin mikið í síðari hálfleik og var sérstaklega gaman að sjá hina ungu Sigríði Láru Garðarsdóttur stela hverjum boltanum á fætum öðrum.  Hins vegar var nýting dauðafæra það sem helst fór úrskeiðis hjá ÍBV, eitthvað sem má ekki klikka gegn sterkari liðum en ÍR.  Stelpurnar komust þó upp með það í kvöld, eins og áður sagði.
 
Mörk ÍBV:
 
Guðbjörg13
Sigríður Lára5
Hekla5
Kristrún4
Anna María2
Aníta2
Sandra1
Þórsteina1
Rakel1