Fótbolti - Hópaleikurinn hefst um helgina

21.jan.2010  14:13
Hópaleikur ÍBV-Getrauna hefst um helgina, leikurinn verður með hefðbundnu sniði leiknar verða 12 vikur og 10 bestu af þeim telja.
Opið verður frá 11:00 - 14:00 á laugardaginn og hvetjum við sem flesta til að taka þátt í skemmtilegum leik. Boðið verður uppá súpu og brauð í hádeginu og því tilvalið að mæta svangur. Einnig verða sigurvegarar frá því í haust verðlaunaðir. Þeir  sem ekki komast á laugardaginn en langar að taka þátt geta sent okkur tölvupóst á 1x2@ibv.is.