Gerir Evrópumótið skemmtilegra

Handbolti - Meistaraflokkur karla sér um Peyjabankann.

14.jan.2010  12:10
Meistaraflokkur karla mun í fjáröflunarskyni halda úti skemmtilegum leik á meðan Evrópumótið stendur yfir. Peyjabankinn hefur verið starfræktur sl. 10 ár en í honum tippa menn/konur á úrslit Evrópumótsins í handbolta. Hægt er að nálgast getraunaseðilinn og frekari upplýsingar hér til hliðar. Um að gera að vera með og gera Evrópumótið meira spennandi!