Fótbolti - Tonny Mawejje á leið til landsins

13.jan.2010  14:55
Úganski landsliðsmaðurinn Tonny Mawejje kemur til landsins á morgun til að hefja undirbúning sinn fyrir komandi tímabil með ÍBV.  Hann byrjar af krafti um helgina en ÍBV spilar þrjá æfingaleiki frá föstudegi til sunnudags.  Eins verða þetta fyrstu leikir Finns Ólafssonar og Ásgeirs Aron Ásgeirssonar fyrir ÍBV.
ÍBV byrjar á að spila við Víði Garði á föstudagskvöld kl. 20.30 í Reykjaneshöll.  Á laugardaginn verður leikur við úrvalsdeildarlið Hauka kl. 16.30 í Kórnum og á sunnudag verður aftur haldið í Reykjaneshöll og spilað við Njarðvík. Hefst sá leikur kl. 16.30.