Handbolti - Meistarflokkarnir í karla og kvenna hefja leiki sína aftur eftir jólafrí

13.jan.2010  15:57
Meistaraflokkur Karla leikur hér heima gegn Þrótti kl 13:30 í íþróttamiðstöðinni, stelpurnar fara til Reykjavíkur og leika þar tvo leiki, fyrst við Þrótt sem þær unnu stórt hér heima fyrr í vetur og síðan við Gróttu sem ekki hefur tapað leik í vetur. Meiðsli hafa verið að hrjá leikmenn í bæði karla og kvenna en vonandi verða allir orðnir heilir fyrir helgina.
Við hvetjum alla til að mæta í höllina og hvetja sína menn, og einnig þá sem eru á fastalandinu að kíkja á stelpurnar en leikurinn þeirra á föstudaginn er á móti Þrótti  kl 21 í Austurbergi og síðan á móti Gróttu kl 14:00 á laguardeginum á Seltjarnanesi