Fótbolti - Dragan Kazic ráðinn þjálfari 2.flokks ÍBV

13.jan.2010  08:37
ÍBV hefur gengið frá ráðningu á Dragan Kazic sem næsta þjálfara 2.flokks félagsins.  Tekur hann við liðinu af Sigurlás Þorleifssyni. Eins mun Dragan starfa sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks félagsins og við sérþjálfun hjá yngri flokkum félagsins. Hann hefur síðustu tvö ár starfað hér á landi.  Fyrst í Grindavík og í fyrra var hann aðalþjálfari meistarfaflokksliðs BÍ í 2.deild.  Hann hefur starfað við þjálfun frá 1989, lengst af í heimalandi sínu Serbíu.

Knattspyrnuráð ÍBV vill nota tækifærið og þakka Sigurlás Þorleifssyni fyrir góð störf með flokkinn á síðasta ári en 2.flokkur vann sig upp um riðil síðastliðið sumar. 

Dragan kom til Eyja seinni partinn í gær og stjórnaði sinni fyrstu æfingu hjá 2.flokk í gærkvöldi.  Við bjóðum hann velkominn til starfa.