Handbolti - Handagangur í öskjunni

05.jan.2010  22:20
Það var handagangur í öskjunni þegar ÍBV stóð fyrir árlegri dósasöfnun í kvöld. Aldrei fleiri hafa mætt til að hjálpa til og bæjarbúar voru duglegir að gefa í söfnunina. Það gekk því mikið á þegar talning stóð yfir. En það gekk mjög vel og endaði með PIZZU og Pepsi. 
 
Við í handknattleiksráði þökkum bæjarbúum og öllum sem mættu að vinna kærlega fyrir hjálpina.