Fótbolti - Æfingaleikir og Gauti og Eiður fóru á æfingar hjá CREWE

10.des.2009  11:54
ÍBV sigraði 2 æfingaleiki síðstu helgi. Anton og Tryggvi halda áfram á skotskónum ásamt öðrum.
Æfingaleikur um helgina á móti Haukum.
Gauti og Eiður á æfingum hjá Crewe, Eiður spilaði fyrri hálfleikinn.

ÍBV lagði Víði 12-2. meðal markaskorara ÍBV, Anton 2, Tryggvi 2, Gaui Ólafs 2, Gauti

ÍBV lagði svo Selfoss með marki frá Eyþóri Helga.

 

Í síðstu viku fór Heimir þjálfari ásamt 2 efnilegum leikmönnum frá ÍBV, þeim Eið Aroni og Gauti til Crewe þar sem þeir fá að æfa með liðinu og svo í gær fékk Eiður að spila fyrri hálf leik með varaliðinu og stóð sig vel. ,Þetta er hluti af samstarfi félaganna tveggja og Eiður og Gauti fá þarna tækifæri til að sýna sig. Ég verð þarna líka í nokkra daga að fylgjast með æfingum og skoða nokkra leikmenn fyrir næsta sumar," sagði Heimir við Eyjafréttir. Heimir verður svo með Hemma Hreiðars og félögum hjá Portsmouth og fylgist með æfingum hjá þeim.

 

Svo um helgina spilar ÍBV við Hauka í Kórnum í Kópavogi.