Handbolti - Tveir útileikir um helgina.

03.des.2009  21:04
Bæði karla og kvennalið ÍBV í mfl. leika á laugardaginn mikilvæga útileiki.
Strákarnir leika við ÍR kl.13:30 í Austurbergi. En þessi lið eru í mikilli baráttu um að komast í Úrslitakeppnina. ÍBV sigraði heimaleikinn 32-25.
Stelpurnar leika gegn HK kl.12:00 í Digranesi. Þar verður hart barist.
Hvetjum við alla Eyjamenn á fasta landinu að mæta og styðja sitt lið. Einnig þá sem eru að versla fyrir jólin að hætta því og koma frekar á leikina. Versla svo í sinni heimabyggð;)