Fótbolti - Finnur Ólafsson skrifar undir hjá ÍBV

27.nóv.2009  15:33
Finnur Ólafsson hefur gengið í raðir ÍBV frá HK. Gerir hann 3ja ára samning við okkur. Finnur er fæddur 1984 og því 25 ára gamall. Leikur hann sem miðjumaður ýmist sem framliggjandi eða djúpur á miðjunni. Finnur sem flaug til eyja í dag til að skrifa undir við ÍBV segir að hann sé spenntur að taka þátt í þeirri uppbyggingu og áhugasemi sem er í gangi hjá knattspyrnuliði ÍBV.

 Finnur mun vætanlega hefja æfingar með ÍBV á komandi dögum. Það er mikill fengur að fá þennan strák til okkar og hlökkum við til að sjá hann spila með okkur í sumar og bjóðum við hann velkominn í ÍBV.