Fótbolti - Kjartan skrifar undir þriggja ára samning

20.nóv.2009  13:49

Hinn ungi og efnilegi Kjartan Guðjónsson skrifaði á miðvikudag undir nýjan þriggja ára samning við ÍBV.  Kjartan kom upp í 2.flokk í fyrra og varð strax einn af lykilmönnum liðsins ásamt því að spila með KFS á síðasta tímabili. Hann var valinn efnilegasti leikmaður KFS á tímabilinu. 

Við væntum mikils af Kjartani í framtíðinni.   Með Kjartani á myndinni er Örn Hilmisson knattspyrnuráðsmaður sem handsalaði samninginn við kappann.