Stelpurnar okkar hafa æft vel og var hver einasta í hópnum er í góðu formi. Markvarslan var fín, en Birna Þórsdóttir sem æfir í Rvk varði vel. Þá kom hin unga Berglind Sigurðardóttir inn á og byrjaði strax á að verja vítakast. Erfitt er að taka einhverjar stelpur út og hrósa sérstaklega, því allt liðið lék vel.
Það má hrósa Þróttar-stelpum fyrir leikinn, en þær lögðu á sig Herjólfsferð í gær. Þær gista í tvær nætur í Eyjum.
Hekla Hannesdóttir skoraði flest mörk fyrir ÍBV alls 8.Anna María Halldórsdóttir skoraði 7 gullfalleg mörk, flest komu eftir þrumuskot. Elísa var mjög frísk og er í fanta góðu formi. Hún gerði 6 mörk eins og Aníta Elíasdóttir. Gamla brýnið Guðbjörg Guðmannsdóttir er komin aftur heim og lék mjög vel, smitaði út frá sér leikgleði og baráttuanda. Hún gerði 5 mörk.
Mörk ÍBV:
Hekla | 8 |
Anna M | 7 |
Aníta | 6 |
Elísa | 6 |
Guðjörg | 5 |
Kristrún | 2 |
Rakel | 1 |
Gígja | 1 |
Sandra | 1 |