Afturelding-ÍBV mfl.kk.

Handbolti - Afturelding hafði betur

11.okt.2009  15:54

En alls ekki alsæmt hjá okkar mönnum.

ÍBV lék sinn fyrsta leik í Íslandsmótinu á laugardaginn, útileik gegn Aftureldingu.
Jafnræði var með liðunum lengst af en þó höfðu Aftureldingarmenn alltaf frumkvæðið. Í hálfleik var staðan 13-9 heimamönnum í vil. Í síðari hálfleik náði ÍBV að minnka muninn í 2 mörk með góðri baráttu, en að lokum unnu Afturelding nokkuð sanngjarnan sigur 27-22.
 
Hjá ÍBV var Arnar Pétursson traustur og hélt vörninni saman lengst af sem og lét boltann ganga vel í sókninni. Sóknarlega var Siggi Braga aðalslúterinn og átti góðar línusendingar sem Bragi Magg nýtti ágætlega. Leifur Jóh. var mjög rólegur í leiknum og átti líklega bara eitt skot á markið allan leikinn. Hornamenn ÍBV voru frískir lengst af og sérstaklega kom Ingólfur Jóh. ferskur inn, nýtti færin sín vel og barðist eins og ljón.
ÍBV liðið á að geta spilað mun betur en það gerði á móti Aftureldingu. Mestu skiptir að leikmenn sem eiga að vera sterkir, jafnvel í efstu deild, eru engan veginn klárir í slaginn og þurfa jafnvel á tveggja mánaða detox meðferð að halda hjá Jónínu.  Kolli í markinu hefur oft átt betri leiki en þennan og verður að hafa í huga að skytta sem hreyfir sig í eina átt skýtur oftar en ekki í gagnstætt horn í markið.
En í heildina þá kæmi það ekki á óvart ef að ÍBV liðið æfir eins og menn að þeir muni leggja Aftureldingu að velli á heimavelli eftir einhverjar vikur. Þetta er lið sem hæglega getur verið að spila um efsta sætið, ekki síst eftir að fá gríðarlegan liðsstyrk í Arnari Péturs. Nú reynir kannski á að fá menn til að líta í eigin barm og setja metnað í æfingarnar, þá getur allt gerst!