Handbolti - Fyrsti leikur vetrarins

08.okt.2009  20:04

Arnar Pétursson leikur með ÍBV

ÍBV leikur sinn fyrsta leik í Íslandsmótinu gegn Aftureldingu á laugardaginn kl.13:30 að Varmá. ÍBV hefur fengið góðan liðsauka, en Arnar Pétursson leikur aftur með ÍBV eftir 12 ára hlé.
Arnar var fyrirliði Íslandsmeistara Hauka og er því mikill liðsstyrkur fyrir ÍBV. Arnar er 33 ára og hokin af leikreynslu. Þá er Sigurður Bragason kominn aftur í liðið, en hann sleit hásin um mitt tímabil í fyrra. Varnartröllið Sindri Haraldsson er einnig kominn inn aftur, en hann var í námi á Akureyri í fyrra. Það má því búast við skemmtilegum vetri, því yngri leikmenn hafa einnig bætt sig frá í fyrra.