Handbolti - Unnur og Guðbjörg þjálfa stelpurnar

01.okt.2009  08:26
Unnur Sigmarsdóttir og Guðbjörg Guðmannsdóttir munu leysa Björn Elíasson af sem þjálfarar kvennaliðs ÍBV. Björn glímir við veikindi og verður vonandi fljótur að ná sér. Guðbjörg mun einnig leika með liðinu. Hún er ein besta handknattleikskona sem eyjarnar hafa alið og verður gaman að sjá hana spila aftur í hvítu treyjunni. Unnur hefur áður þjálfað ÍBV í mfl. með frábærum árangri.