Fótbolti - Vinnslustöðin býður á leik ÍBV og Fylkis

17.sep.2009  10:24
Síðasti heimaleikur sumarsins fer fram á sunnudaginn kl. 17.00.  Þá koma Óli Þórðar og félagar í Fylki í heimsókn en þeir eru sem stendur í 3.sæti Pepsi deildarinnar.  ÍBV er sem stendur í 10.sæti en gætu með góðum árangri í síðustu tveimur leikjunum og hagstæðum úrslitum náð 7.sæti í deildinni
Vinnslustöðin hefur ákveðið að bjóða Eyjamönnum á völlinn og vonumst við til að sem flestir sjái sér fært að mæta og styðja við bakið á strákunum í þessum síðasta leik sumarsins á Hásteinsvelli.
 
Við þökkum Vinnslustöðinni kærlega fyrir þeirra framlag.