Fótbolti - Gauti skrifar undir þriggja ára samning

18.ágú.2009  14:56
Hinn ungi og efnilegi sóknarmaður ÍBV, Gauti Þorvarðarson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við félagið.  Gauti sem er tvítugur að aldri keppti sinn fyrsta leik fyrir ÍBV í fyrra í 1.deildinni en alls tók hann þátt í sex leikjum á síðasta ári, fjórum í deild og tveimur í bikar.  Hann hefur aldeilis minnt á sig á þessu tímabili og hefur spilað tíu leiki í Pepsi-deildinni í sumar auk þess sem hann spilaði einn leik í VISA bikarnum. Hann hefur skorað eitt mark í sumar og var það eitt glæsilegasta mark sumarsins, í 3-1 sigri á Grindavík.
Knattspyrnuráð lýsir yfir mikilli ánægju með þá ákvörðun Gauta að vera áfram í Eyjum.  Bindum við vonir við að hann eigi eftir að raða inn mörkum fyrir ÍBV á næstu árum.