Fótbolti - Elías Ingi Árnason til ÍR

14.júl.2009  13:08
Sóknarmaðurinn Elías Ingi Árnason hefur ákveðið að halda á heimaslóðir og spila út tímabilið með 1.deildarliði ÍR.  Þaðan kom Elías Ingi fyrir tímabilið og var hann markahæsti leikmaður þeirra í fyrra.  Hann hefur ekki  náð að vinna sér sæti í ÍBV liðinu og hefur því ákveðið að söðla um. Stjórn knattspyrnuráðs, leikmenn og þjálfarar þakka Elíasi fyrir hans framlag til ÍBV um leið og við óskum honum velfarnaðar hjá nýju liði.