Fótbolti - Fylkir - ÍBV í kvöld kl. 19.15

01.júl.2009  08:57
Eyjamenn halda í Árbæinn í kvöld og mæta þar Óla Þórðar og félögum hans í Fylki.  Leikurinn er sá fyrsti í 10.umferð Pepsi deildarinnar.  Hvetjum við alla Eyjamenn á stór-höfuðborgarsvæðinu að fjölmenna á völlinn í kvöld og hvetja okkar menn.  Hittingur verður á Steak and Play fyrir stuðningsmenn ÍBV kl. 17.00.
Eyjaliðið verður án Gauta Þorvarðarsonar sem tekur út leikbann í kvöld eftir brottvísun hans gegn FH.