Fótbolti - Hittingur á Steak´n Play

19.jún.2009  13:28
Stuðningsmenn ÍBV ætla að hittast á Steak´n Play n.k. mánudag frá kl. 17:30 og þiggja grillaðar pylsur og koma sér í gírinn fyrir leikinn gegn Valsmönnum. Það var fín mæting og stemming fyrir leikinn gegn Þrótti s.l. sunnudag þó úrslitin hafi ekki staðið undir væntingum. ÍBV-fánar hafa blakt við hún á Grensásveginum síðan.
Upplýsingar um byrjunarliðið verða komnar á staðinn og ætla tæknimeistarar Steak´n Play að vera á staðnum til að sýna myndbandið “Slor og skítur” MEÐ hljóði ! Mögulega verður meira myndefni frá ÍBV sýnt af þessu tilefni t.d. myndbrot úr síðustu leikjum. Diskur með myndbandinu og laginu “Komum fagnandi” verður til sölu á staðnum, sem og ÍBV-bílafánar.
 
 
Áfram ÍBV !
 
Stuðningsmenn