32. liða úrslit VISA bikarsins

Fótbolti - ÍBV - Víkingur kl. 19.15 á fimmtudag

16.jún.2009  20:25
ÍBV mætir Víkingum úr Reykjavík í 32.liða úrslitum VISA bikarsins á fimmtudag kl. 19.15.  Liðin léku saman í 1.deild í fyrra en þá var Víkingum spáð efsta sætinu en Eyjamenn enduðu þar. ÍBV vann báða leikina í fyrra, 1-4 á Víkingsvelli og 1-0 á Hásteinsvelli. 
Alls hafa liðin leikið 19 leiki á Hásteinsvelli í mótum KSÍ og hafa Eyjamenn unnið 7, jafntefli hefur orðið í 7 leikjum og Víkingar hafa unnið 5. Þetta er þó í fyrsta skipti sem liðin mætast í bikarkeppninni í Eyjum. Það er kærkomið fyrir Eyjamenn að fá heimaleik í umferðinni enda hefðu liðið 28 dagar á milli leikja á Hásteinsvelli ef ekki hefði komið til 32 liða úrslit bikarsins. 
 
Rétt er að geta þess að ársmiðar á leiki ÍBV gilda ekki á leiki í bikarkeppni.