Fótbolti - ÍBV - Víkingur Rvk í 32 liða úrslitum VISA bikarsins

04.jún.2009  13:55
I hádeginu var dregið í 32 liða úrslit VISA bikarsins.  Eyjamenn fengu heimaleik, gegn 1.deildarlið Víkings í Reykjavík.  Ekki liggur fyrir hvort leikurinn verði fimmtudaginn 18.júní eða föstudaginn 19.júní.
ÍBV og Víkingur léku tvo leiki í fyrra sem Eyjamenn unnu, 1-4 í Reykjavík og 1-0 í Eyjum.  Þjálfaraskipti hafa orðið hjá Víkingum síðan en skólastjórinn úr Hafnarfirði, Leifur Garðarson tók við liðinu síðastliðinn vetur.  Næstu tveir leikir ÍBV í Pepsi deildinni eru útileikir.  Gegn Þrótti sunnudaginn 14.júní og gegn Val mánudaginn 22.júní og kemur þessi leikur því á milli. Er það kærkomið enda er næsti heimaleikur ÍBV í deildinni 28.júní gegn Íslandsmeisturum FH.