Fótbolti - Eiður Aron valinn í U-21 árs landsliðið

02.jún.2009  16:32

-skrifaði undir nýjan þriggja ára samning við ÍBV

Hinn bráðefnilegi miðvörður ÍBV, Eiður Aron Sigurbjörnsson var í dag valinn í U-21 árs landslið Íslands sem mætir Dönum í vináttuleik í Árósum á föstudag.  Eiður hefur spilað gríðarlega vel í fyrstu leikjum ÍBV í sumar og átti til að mynda frábæran leik gegn Grindavík í gær.  Hann hefur vaxið mikið í miðvarðarstöðunni og er hann án efa einn af framtíðarmönnum ÍBV.

Í dag skrifaði leikmaðurinn svo undir nýjan samning við félagið. Eiður samdi við ÍBV til ársloka 2011. 

 

Mynd: Eyjafréttir