Fótbolti - ÍBV - Grindavík kl. 19.15 í kvöld

01.jún.2009  10:53
ÍBV tekur í kvöld á móti Grindavík í 6.umferð Pepsi deildarinnar. ÍBV liðið er ákveðið í að byggja ofan á glæsilegan sigur í Grafarvoginum á fimmtudaginn.  ÍBV óskaði eftir leyfi til að loka veginum við Hástein á meðan á leik stendur og hefur Sýslumaður gefið leyfi fyrir því.  Er þetta gert fyrst og fremst af öryggisástæðum.  Þó munu eldri borgarar sem óska eftir því fá leyfi til að leggja bílum sínum við völlinn.
Lokað verður hálftíma fyrir leik, við gatnamótin Dalvegur/Áshamar að vestanverðu og Illugagötu/Dalveg að austanverðu.
Hvetjum við fólk til að mæta á völlinn í kvöld og hvetja okkar menn til sigurs í blíðunni.