Fótbolti - Elías Fannar frá í 3 mánuði.

02.apr.2009  01:00
Elías Fannar Stefnisson markmaður 2. og meistaraflokks ÍBV meiddist á hné í síðasta meistaraflokksleik og í aðgerð á mánudag kom í ljós að liðþófi var rifinn og krossbönd illa tognuð.

Læknar ráðleggja Fannari að taka sér frí frá knattspyrnuiðkun í 3 mánuði að hið minnsta. Þetta er mikil blóðtaka fyrir ÍBV því það er ljóst að Fannar missir hið minnsta af hálfu Íslandsmótinu. Kappinn er þó grjótharður og vonandi verður batinn hraðari en búist er við.

Skjótan bata Fannar.