Handbolti - Herrakvöld ÍBV á föstudaginn!

17.mar.2009  15:19

Herrakvöld ÍBV verður haldið föstudaginn 20. mars næstkomandi í Akógeshúsinu. Heiðursgestur verður Valgeir Guðjónsson, tónlistamaður. Kári Vigfússon, yfirbryti mun sjá um matinn og mun hann bjóða upp á margrétta hlaðborð sjávar- og kjötrétta. Skráning er hafin hjá Viktori Ragnarssyni í síma 8964791 eða bara þegar þú lætur klippa þig.

Nú þegar hafa rúmlega hundrað manns skráð sig.