Fótbolti - Heimir skrifar undir tveggja ára samning

16.mar.2009  11:19
Heimir Hallgrímsson þjálfari ÍBV hefur framlengt samning sinn við félagið um tvö ár. Heimir tók við liðinu síðla sumars 2006 af Guðlaugi Baldurssyni og hefur stýrt því síðan. Hann hefur stjórnað liðinu í 51 deildarleik, 32 sigrar, 8 jafntefli og 11 tapleikir. Árangur liðsins var frábær á síðasta sumri þar sem liðið sigraði 1.deildina með glæsibrag.

Það er ljóst að erfitt verkefni bíður Heimis og strákanna á komandi sumri en markmiðið er skýrt. Að halda ÍBV uppi í deild þeirra bestu. Heimir hefur verið þekktur fyrir að gefa ungum og efnilegum leikmönnum tækifæri og engin breyting verður á því í sumar. Leikmannahópur ÍBV er ungur að árum en þökk sé stefnu Heimis síðustu ár er hann langt í frá reynslulaus.

Knattspyrnuráð lýsir yfir ánægju sinni með undirskrift Heimis og þó aldrei hafi annað verið rætt en að hann héldi áfram með liðið er slíkt ekki öruggt fyrr en undirritaður samningur liggur fyrir. Samningurinn við Heimi er í samræmi við þá stefnu knattspyrnuráðs að draga úr launakostnaði deildarinnar. Ekki var ágreiningur við þjálfarann um það en aðaláherslur hans í samningaumleitan snéru að umgjörð liðsins og leikmannahópnum.