Fótbolti - Pétur Runólfs með nýjan samning

12.mar.2009  09:19
Miðjumaðurinn öflugi, Pétur Runólfsson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við ÍBV. Pétur lék sinn fyrsta leik fyrir félagið gegn Breiðablik í 16 liða úrslitum bikarkeppni KSÍ árið 2001. Kom hann inn á í 3:1 sigri ÍBV. Pétur hefur alls leikið 101 leik í deild og bikar fyrir félagið og skorað í þeim 10 mörk.

Pétur sem er 27 ára gamall lék lykilhlutverk í 1.deildar meistaraliði ÍBV á síðasta tímabili og bindum við miklar vonir við kappann á komandi tímabili.