Fótbolti - Matt Garner framlengir við ÍBV

16.feb.2009  19:29
Knattspyrnuráð ÍBV og varnarmaðurinn sterki, Matt Nicholas Garner hafa komist að samkomulagi um nýjan samning. Matt hefur verið lykilleikmaður í liði ÍBV undanfarin ár og var fyrirliði liðsins á síðasta tímabili. Matt kom fyrst til ÍBV árið 2004 frá enska liðinu Crewe. Hann kom aftur til liðsins 2006 og hefur spilað með félaginu síðan, alls 68 leiki og skorað í þeim tvö mörk.

Knattspyrnuráð ÍBV fagnar þeirri ákvörðun Matt Garner að hann hafi ákveðið að semja á ný við félagið og halda þannig tryggð við ÍBV á mikilvægum tímapunkti.