Fótbolti - IBV enn með fjóra fulltrúa
12.jan.2009 15:03
Ólafur Þór Guðbjörnsson valdi aftur fjóra leikmenn ÍBV til æfinga með landsliði U-19 um helgina. Þetta eru Þórhildur Ólafsdóttir, Saga Helgadóttir, Kristín Erna Sigurlásdóttir og Elísa Viðarsdóttir. Það styttist í að hópurinn verði skorinn niður þar sem Ísland leikur í milliriðli evrópumótsins í Apríl.