Fótbolti - Andy kóngur í ríki sínu.

11.jan.2009  16:58

Landslið Uganda leikur um þessar mundir í Caefca sem er keppni landsliða í mið og austur Afríku. Uganda er umsjónaraðili mótsins að þessu sinni og hefur heimaliðið staðið sig með miklum sóma og leikur úrslitaleik mótsins á morgun gegn sterku liði Kenýa.

Andy Mwesigwa leikmaður ÍBV er fyrirliði Uganda og hefur hann vakið mikla athygli fyrir góða frammistöðu til þessa. Landslið Uganda er að mestu skipað leikmönnum sem eru ungir og fyrir utan Andy og framherjans Massa leika allir leikmennirnir með liðum í Uganda.

Uganda hefur á leið sinni unnið Rwanda 4-0, Sómalíu 4-0, Tanzaníu 2-1 og gert 0-0 jafntefli við Zanzibar. Í gær vann Uganda lið Burundi 5-0 í undanúrslitum og skoraði Andy eitt af mörkum Uganda með góðum skalla. Hann fagnaði gríðarlega áður en hann þakkaði Guði fyrir markið eins og hann gerir vanalega.

Þess má geta í framhaldi að Heimir Hallgrímsson hefur fylgst með mótinu síðustu daga og var að vonum stolltur af sínum manni. Andy og Gústi eru væntanlegir til Vestmannaeyja í byrjun mars.