Það var allt annað að sjá til ÍBV liðsins gegn Þrótti en um síðustu helgi þegar þeir léku gegn ÍR. Nú sýndu þeir sitt rétta andlit og nýttu færin. Í leiknum gegn ÍR misnotuðu þeir 23 skot af 6 metra færi, en núna fór allt inn.
ÍBV var mun sterkari aðilinn og voru 10 mörkum yfir í hálfleik. Lokatölur urðu 36-25. Markaskorun dreifðist á mannskapinn.
Næsti leikur er gegn Gróttu hér heima á laugardaginn og hefst hann kl.14:00.
Grótta er í efsta sæti 1 deildar.